38. Rask-ráðstefnan 2025

38. Rask-ráðstefna Íslenska málfræðifélagsins verður haldin í samvinnu við Málvísindastofnun Háskóla Íslands dagana 24.-25. janúar á Heimasvæði tungumálanna í Veröld – húsi Vigdísar. Ráðstefnan verður lengri og með hátíðlegra yfirbragði en venjulega í tilefni 45 ára afmælis Íslenska málfræðifélagsins, 50 ára afmælis Málvísindastofnunar og 25 ára afmælis Málvísindakaffis. Að ráðstefnunni lokinni verður boðið upp á léttar veitingar og skálað.

Dagskrá

Föstudagurinn 24. janúar

12:45-13:00 Ráðstefnan sett
13:00-13:30 Ásgrímur Angantýsson og Annika Simonsen Þrjár gerðir orsakarsetninga í færeysku
13:30-14:00 Ása Jónsdóttir og Rósa Signý Gísladóttir Heyrðu: notkun og hlutverk
14:00-14:30  Jóhannes Gísli Jónsson Flokkun S1-setninga sem tákna fullyrðingar
14:30-15:00 Kaffihlé
15:00-15:30 Sigríður Sigurjónsdóttir, Ása Bergný Tómasdóttir, Filippa Lindahl og Maia Andréasson Mismunandi þróun andlagsstökks í máltöku íslenskra og sænskra/norskra barna
15:30-16:00 Kristín M. Jóhannsdóttir Þolmynd í vesturíslensku
16:00-17:00 Flugur
Atli Jasonarson Áhliða óvinamegin: Um orðaforða Knattspyrnulaga frá 1907
Eva Hrund Sigurjónsdóttir Staða og þróun nýmæla í íslenskum framburði: Litið til höggmælis og tvinnhljóðaframburðar
Ása Bergný Tómasdóttir og Stefanie Bade Viðhorf til og hugmyndir um nýmæli í íslenskum framburði: Litið til höggmælis og tvinnhljóðaframburðar
Bolli Magnússon Hefur fjöldi samsettra orða áhrif á máltökuna?
Einar Freyr Sigurðsson Frásagnarlist barna og notkun tíða
Isidora Glisic Gagnaöflun í íslensku sem öðru máli: málnemamálheild og CEFR-samræming
Johanna Mechler, Lilja Björk Stefánsdóttir og Anton Karl Ingason Icelandic MPs in crisis: Variable use of Stylistic Fronting in the linguistic aftermath of the economic crash
Katrín Axelsdóttir Agnarögn um alþýðuskýringar(fordóma)
17:00 Dagskrá lýkur

Laugardagurinn 25. janúar
 

10:00-10:30 Þórhallur Eyþórsson Afturbeyging í forníslensku – aftur
10:30-11:00 Haraldur Bernharðsson Unnur og Auður djúpúðga
11:00-11:30 Sigríður Sæunn Sigurðardóttir Hvað eru málspár og hvernig gagnast þær sögulegum málvísindum?
11:30-12:00 Jordan Chark Samspil kyns, stéttar og menntunar í útbreiðslu lokins horfs með búinn í íslenskum sendibréfum frá 19. öld
12:00-13:00 Hádegishlé
13:00-13:30 Anton Karl Ingason S-kúrfur og einstakir textar
13:30-14:00 Steinunn Rut Friðriksdóttir og Hafsteinn Einarsson Stafræn samræðugreining: Greining á athugasemdum íslenskra bloggnotenda á 19 ára tímabili
14:00-14:30 Bjarki Ármannsson Mállíkön og myndun orða
14:30-15:00 Ágústa Þorbergsdóttir og Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir Sorrí að ég sletti
15:00-16:00 Hátíðarerindi
Höskuldur Þráinsson
Kristján Árnason
Joan Maling
Eiríkur Rögnvaldsson
Matthew Whelpton
Sigríður Sigurjónsdóttir
16:00 Ráðstefnu slitið