37. Rask-ráðstefnan 2024

37. Rask-ráðstefna Íslenska málfræðifélagsins í samvinnu við Málvísindastofnun Háskóla Íslands verður haldin í fyrirlestrasal Eddu — Húsi íslenskunnar laugardaginn 27. janúar 2024.

Dagskrá

9:55-10:00 Setning ráðstefnunnar
10:00-10:30 Ellert Þór Jóhannsson Rasmus Rask og drög að dansk-íslenskri orðabók 
10:30-11:00 Jóhannes B. Sigtryggsson Kerfi þriggja mismunandi stafmerkja yfir sérhljóðum – hálfmisheppnuð stafsetningartilraun Rasks
11:00-11:30 Auður Hauksdóttir Hvers vegna voru áhrif frá dönsku á Íslandi með allt öðrum hætti en í Noregi og Færeyjum? Um tengsl íslensku, norsku og færeysku við dönsku í sögulegu samhengi
11:30-12:00 Ásgrímur Angantýsson, Finnur Friðriksson og Stefanie Bade Nýjasta þróun norðlenskra og sunnlenskra framburðarafbrigða og viðhorf til þeirra
12:00-13:00 Matarhlé
13:00-13:30 Rannveig Sverrisdóttir Ein mínúta af gögnum er 100 mínútna vinna: Um aðferðafræði og skráningu gagna í táknmálsrannsóknum
13:30-14:00 Jóhannes Gísli Jónsson Orðaröð í íslensku táknmáli
14:00-14:30 Þórhallur Eyþórsson Sagnir með eignarfallsfrumlagi
14:30-15:00 Kaffihlé
15:00-15:30 Kristín Bjarnadóttir Sagnaskortur í BÍN: Samanburður við orðaforða í Risamálamálheild (2022)
15:30-16:00 Einar Freyr Sigurðsson og Ingunn Hreinberg Indriðadóttir Aðeins um horf í íslensku og rússnesku
16:00-16:30 Anton Karl Ingason og Lilja Björk Stefánsdóttir Spagettíkúrfur í krísu: Að hafa mismikla stjórn á aðstæðum
16:30 Ráðstefnunni slitið